|
|
Dagskrá stoðtíma 2012
Tímarnir eru á fimmtudögum frá 17:30-19:30 og fer öll kennsla fram í sal safnaðarheimilis Áskirkju. Kennarar námskeiðsins sjá um fyrirlestra, en núverandi læknanemar um stoðtíma. Dagskráin er birt hér, með fyrirvara um smávægilegar breytingar:
12. janúar - Siðfræði/Almennt um prófið
Í fyrri tímanum verður farið yfir helstu atriði siðfræði og hvernig best er að nálgast siðfræðileg álitamál. Seinni tíminn verður helgaður prófundirbúningi, formi prófsins og formsatriðum því tengdu. Báðir fyrirlestrar verða endurteknir „utan dagskrár“ í fyrirlestrarsyrpunni maí/júní.
19. janúar - Stærðfræði/Áherslur prófsins
Í fyrri tímanum verður farið yfir helstu atriði STÆ103 og STÆ203 (jöfnur, algebra og föll). Eftir hlé verða 30 mínútur teknar í dæmareikning og 30 mínútur þar sem farið verður yfir helstu áherslur prófsins (líffræði, efnafræði og eðlisfræði).
26. janúar - Líffræði/Almennt um prófið
Í fyrri tímanum verður farið yfir efni NÁT103 (vítamín, efni líkamans,
sveim, frumur, vefi, efnaskipti og orkubúskap, æxlun, flokkun og
vistfræði). Eftir hlé verða 30 mínútur teknar í verkefni úr NÁT103 og því næst 30
mínútur þar sem farið verður yfir helstu áherslur prófsins (stærðfræði, íslenska, enska, almenn þekking, siðfræði, lesskilningur, sálfræði, félagsfræði og saga).
2. febrúar - Efnafræði
Í fyrsta stoðtímanum verður lögð megináhersla á lotukerfið, mólreikning og efnajöfnur. Þetta eru grunnatriði efnafræðinnar sem allir verða að hafa á hreinu.
9. febrúar - Eðlisfræði
Farið verður í grunnatriði í eðlisfræði og rætt um stærðir og einingar. Við byrjum á hreyfifræði, kraftfræði og farið verður í varðveislu orku og skriðþunga. Gott væri að prenta út formúlublað læknadeildar, til að hafa til hliðsjónar í dæmatímanum.
15. febrúar
- Íslenska/Almennt um prófið (lesskilningur/almenn þekking)
Farið verður yfir nokkur grunnatriði í íslenskri málfræði. Mest verður
fjallað um orðflokka og helstu einkenni þeirra auk grunnhugtaka í
setningafræði og hljóðfræði. Íslenskar framburðarmállýskur,
greinamerkjasetning og algengar málvillur í íslensku koma einnig við sögu. Haldinn verður fyrirlestur um almenna þekkingu og áherslur prófsins í því sambandi - gott væri ef nemendur tækju með sér Grænjaxlahandbókina í tímann. Einnig verður farið yfir atriði, sem gott er að hafa í huga þegar lesskilningshluti prófsins er unninn. Fyrirlestrar verða endurteknir utan dagskrár á vornámskeiði.
23. febrúar - Stærðfræði
Í fyrri tímanum verður farið yfir helstu atriði STÆ103 (rúmfræði og hlutföll) og STÆ303 (hornaföll). Eftir hlé verða 60 mínútur teknar í dæmareikning.
1. mars - Líffræði
8. mars - Efnafræði
15. mars - Eðlisfræði
22. mars - Stærðfræði
29. mars - Líffræði
5. apríl - Efnafræði
|
|
|
©2012 Inntökupróf.is - öll réttindi áskilin
|